Hörkusala til stuðnings Candle Light Foundation
Laugardaginn 26. nóvember var félagið með sölu í Kringlunni til styrktar Candle Light Foundation. Vinir og vandamenn komu með heimabakaðar kökur, en einnig var boðið upp á rúgbrauð, kerti sem félagsmenn höfðu búið til úr endurunnu vaxi og skartgripi sem skjólstæðingar CLF hafa búið til. Salan gekk rífandi vel, viðskiptavinir Kringlunnar sýndu mikinn áhuga og alls söfnuðust rúmlega 200,000 kr, sem renna óskipt til að styrkja skólagöngu stúlkna í Kampala. Fá allir sem aðstoðuðu bestu þakkir!
Kertagerð
Nokkrir félagsmenn Alnæmisbarna hittust sunnudaginn 20. nóvember og bjuggu til kerti úr endurnýttu vaxi. Alls voru búin til um 140 kerti, og verða þau seld í árlegri sölu Alnæmisbarna í Kringlunni laugardaginn 26. nóvember, frá 10 til 17. Ýmislegt annað verður í boði, skartgripir sem framleiddir eru af skjólstæðingum Candle Light Foundation í Uganda, nýbakað rúgbrauð og kökur. Þeir sem vilja taka þátt með því að gefa kökur geta haft samband við Sigríði Baldursdóttur, formann Alnæmisbarna (sib30@hi.is), eða komið og verslað. Allur ágóði af sölunni fer í að styrkja menntun ungra stúlkna í Uganda.
Sala á barnafötum í Kolaportinu
Helgina 24.-25. september var stjórn Alnæmisbarna með sölu í Kolaportinu á notuðum barna- og unglingafatnaði tilstyrktar stúlkum í Candle Light Foundation. Fötin voru gefin félaginu og voru á börn frá fæðingu til unglingsaldurs.
Hagnaður af sölunni var 46,000 sem nægir fyrir námi einnar stúlku í framhaldsskóla í eitt ár. Sama upphæð nægir fyrir námi tveggja stúlkna í grunnskóla í jafn langan tíma.
Enn er til nóg af fötum og því stefnt að því að fara aftur í Kolaportið eftir áramót. Þá verður hægt að kaupa poka af fötum fyrir 1.000kr. Fólk er því er hvatt til að fylgjast með fréttum af næstu sölu og koma og styrkja gott málefni.
Candle Light fær myndavél
Í ágúst fékk Candle Light Foundation myndavél að gjöf frá Alnæmisbörnum og ætlar Rosette Nabuuma, forstöðukonan, að vera dugleg að senda myndir af stelpunum og starfi samtakanna. Úgandi, James Kabagambe, sem er búsettur í Svíþjóð hafði myndavélina í för með sér síðast þegar hann heimsótti heimalandið og færði samtökunum hana. Hann fékk leiðsögn um svæðið og kynntist starfinu. Hann var ánægður með það sem hann sá og fannst svo mikið til þess koma að hann ákvað að styrkja starfið um 100 þúsund shillinga sem eru um 4000 krónur. Þá keypti hann einnig kerti sem stelpurnar höfðu búið til. Svona framlag er auðvitað mikilvægt fyrir stelpurnar og eru Alnæmisbörn þakklát fyrir svona stuðning.
Þeir sem vilja styrkja starfið geta smellt hér.
Ný stjórn Alnæmisbarna
Á síðasta aðalfundi Alnæmisbarna þann 22. mars 2011 var kosin ný stjórn. Þrír gengu úr stjórn, Ingibjörg Guðlaugsdóttir, Lárus Valgarðsson og Ásdís Ólafsdóttir. Félagið þakkar þeim vel unnin störf í þágu félagsins.
Í stjórn næsta árið eru:
Sigríður Baldursdóttir, formaður
Hildur Gestsdóttir, varaformaður og gjaldkeri
Sigurlaug Hauksdóttir, ritari
Aðrir í stjórn eru: Ragna Karlsdóttir, Margrét Skúladóttir, Dögg Guðmundsdóttir og Harpa Hauksdóttir, meðstjórnendur.

![IMG_0109[1] Silla stendur vaktina í Kolaportinu](http://www.hiv-born.is/wordpress/wp-content/uploads/2011/10/IMG_01091-250x250.jpg)
![IMG_0108[1]](http://www.hiv-born.is/wordpress/wp-content/uploads/2011/10/IMG_01081-490x367.jpg)

