Zonta-konur styrkja Alnæmisbörn

Zonta-klúbburinn Embla afhenti þann 16. desember 2004, stjórn Alnæmisbarna 200 þúsund króna styrk til verkefna félagsins í Kampala, Úganda. Þá hyggst Zonta-klúbburinn Embla styrkja Alnæmisbörn með a.m.k. 50 þúsund króna framlagi á ári, næstu 3 árin. Zonta-klúbburinn Embla hefur áður stutt með fjárframlögum við starf Erlu Halldórsdóttur í Úganda. Embla er einn sjö Zonta-klúbba á Íslandi en aðalmarkmið Zonta-hreyfingarinnar að styrkja stöðu kvenna í heiminum. Zonta-hreyfingin hefur styrkt konur í þriðja heiminum í nánu samstarfi við UNIFEM og UNICEF til margra ára. Það var Þóra Bjarnadóttir, formaður Zonta-klúbbsins Emblu, sem afhenti Þórunni Sveinbjarnardóttur, formanni stjórnar Alnæmisbarna styrkinn. Félagið Alnæmisbörn var stofnað í mars 2004 og er tilgangur þess að stuðla að bættum hag ungra kvenna og barna sem eiga undir högg að sækja vegna alnæmis. Aðalverkefni félagsins er að styrkja rekstur kertagerðar í Kampala (Candle Light Foundation). Erla Halldórsdóttir stofnaði kertagerðina árið 2001 með það að markmiði að gera ungar stúlkur sjálfbjarga. 43 ungar konur hafa starfað þar frá upphafi og hafa sumar þeirra einnig aflað sér starfsmenntunar. Um þessar mundir starfar 21 stúlka á aldrinum 15 til 23 ára við verkefnið. Sjö þeirra eiga ung börn og eru sum þeirra HIV-smituð. Stjórn Alnæmisbarna kann Zonta-klúbbnum Emblu bestu þakkir fyrir stuðninginn við starfsemina í Kampala. Kertagerðin er ekki stór í sniðum en óhætt er að fullyrða að starfsemi hennar hefur gert gæfumuninn í lífi ungu kvennanna sem þar hafa hlotið skjól, starfsþjálfun, læknishjálp og stuðning til þess að mennta sig. Félagið hefur einnig hug á að styrkja fleiri verkefni sem hafa það að markmiði að styðja börn sem hafa orðið fyrir barðinu á alnæmi.
This entry was posted on Fimmtudagur, desember 16th, 2004 at 10:01 e.h. and is filed under Uncategorized. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. Both comments and pings are currently closed.