Alnæmisbörn

Þú getur gert gæfumuninn

HIV-born

Alnæmisbörn safna fyrir dagheimili

 

Í Norður-Úganda hefur ríkt stríðsástand í 20 ár og margar fjölskyldur hafa mátt þola óbærilega erfiðleika. Um 1,5 milljónir manna búa nú í flóttamannabúðum sem eru settar upp til verndar þeim sem þar dvelja fyrir árásum skæruliða. Aðstæður í búðunum eru gífurlega erfiðar, þær eru sóðalegar, yfirfullar og hreinlætisaðstaða af skornum skammti. Þær hafa líka valdið því að hefðbundin fjölskyldubönd rofna.

Mary

Börn og þá sérstaklega ungar stúlkur eru þar auðveld bráð fyrir þá sem vilja misnota þær kynferðislega.  Hér er sögð saga einna þessarra stúlkna, Mary. Sagan hefst þegar Mary var 13 ára. Þá varð henni nauðgað mörgum sinnum af nokkrum ungmennum þegar hún eitt kvöldið fór út fyrir búðirnar til þess að baða sig í vatni í nágrenninu. Í kjölfarið fylltist Mary örvæntingu og þunglyndi en þorði ekki að segja neinum frá af ótta við hefndir. Þegar upp komst að Mary átti von á barni var henni kennt um að hún væri ófrísk og hún barin.

Vegna fátæktar móður hennar naut hún ekki umönnunar hjúkrunarfólks meðan á meðgöngunni stóð. Við fæðingu barnsins kvaldist Mary í þrjá daga áður en eldri kona var kölluð til hjálpar án þess að hafa til þess kunnáttu. Í fæðingunni sköðuðust æxlunarfæri hennar og blaðra. Hún getur ekki lengur haft stjórn á þvagláti og er höfð að aðhlátri vegna þess að  „hún lyktar”. Mary býr í dag í litlum kofa í flóttamannabúðunum ein með barni sínu sem hún á í miklum erfiðleikum með að hugsa um og framfleyta. Framtíð hennar, ef einhver, er óljós og hjálp ekki að finna.

Byggjum dagheimili í Rackoko

Til þess að hjálpa stúlkum eins og Mary hafa Félagið Alnæmisbörn og ABC-barnahjálp tekið höndum saman við ABC- barnahjálp í Uganda til aðstoðar barnungum stúlkum á aldrinum 12 til 16 ára, sem eru þungaðar eða eru með smábörn. Safnað verður fjármunum til þess að byggja miðstöð í flóttamannabúðunum í Rackoko, þorpi í Pader héraðinu í Norður- Úganda þar sem stúlkurnar fá húsnæði, fæði, læknisaðstoð og fræðslu um umönnun ungbarna. Einnig verða þær aðstoðaðar við að afla sér menntunar.

Lögð verður áhersla á að styrkja samband þeirra við fjölskyldur sínar. Dagheimili verður á staðnum og mun Félag Alnæmisbarna safna sérstaklega fyrir því. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er um 14 milljónir íslenskar krónur og kostnaður við dagheimilið um  2,8 milljónir íslenskra króna.

Þeir sem vilja leggja fé til verkefnisins eru beðnir um að hafa samband við Maríu J. Gunnarsdóttur, formann Félags Alnæmisbarna, á netfanginu: mariaj@samorka.is

Fé sem safnast mun renna óskipt til aðstoðarinnar.

Comments are closed.