Alnæmisbörn

Þú getur gert gæfumuninn

HIV-born

Kertagerð

Hildur í kertagerð

Nokkrir félagsmenn Alnæmisbarna hittust sunnudaginn 20. nóvember og bjuggu til kerti úr endurnýttu vaxi. Alls voru búin til um 140 kerti, og verða þau seld í árlegri sölu Alnæmisbarna í Kringlunni laugardaginn 26. nóvember, frá 10 til 17. Ýmislegt annað verður í boði, skartgripir sem framleiddir eru af skjólstæðingum Candle Light Foundation í Uganda, nýbakað rúgbrauð og kökur. Þeir sem vilja taka þátt með því að gefa kökur geta haft samband við Sigríði Baldursdóttur, formann Alnæmisbarna (sib30@hi.is), eða komið og verslað.  Allur ágóði af sölunni fer í að styrkja menntun ungra stúlkna í Uganda.

Comments are closed.