Alnæmisbörn

Þú getur gert gæfumuninn

HIV-born

Archive for the ‘Uncategorized’ Category

Ný stjórn Alnæmisbarna

Stjórn félagsins Alnæmisbörn sem kosin var á aðalfundi félagsins 18. mars 2010 hélt sinn fyrsta stjórnarfund 14. apríl s.l. og skipti með sér verkum. Skipting verka innan stjórnar er óbreytt frá 2009 utan að  Hildur Gestsdóttir, varaformaður, mun taka að sér gjaldkerastarfið í stað Ásdísar Ólafsdóttur. Skipan stjórnar Alnæmisbarna árið 2010-2011: Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, formaður, Hildur Gestsdóttir, varaformaður og gjaldkeri, Sigurlaug Hauksdóttir, ritari og meðstjórnendur eru Ásdís Ólafsdóttir, Lárus Valgarðsson, Ragna Karlsdóttir og Sigríður Baldursdóttir. Ásdís mun hafa umsjón með fjáröflun til þess að félagið geti staðið við skuldbindingar sínar vegna skólagöngu stúlkna á vegum Candle Light Foundation og Lárus mun hafa umsjón með heimasíðu Alnæmisbarna.

Sala á brauði og kökum í Kringlunni

Alnæmisbörn stóðu fyrir sölu á brauði og kökum, sem um 20 félagsmenn og velunnarar Alnæmisbarna bökuðu, í Kringlunni laugardaginn 18. mars s.l. Nokkrar körfur, sem þrjár stjórnarkonur tóku með sér heim frá Candle Light Foundation í lok árs 2008, voru einnig á boðstólum. Vel gekk og seldist fyrir kr. 93.000 og er hreinn ágóði um kr. 80.000 þegar kostnaður vegna leigu á aðstöðu og annað er dreginn frá.

Aðalfundur Alnæmisbarna árið 2010

Aðalfundur Alnæmisbarna var haldinn þann 18. mars 2010 í Orkugarði að Grensásveg 9 og var dagskrá hans samkvæmt lögum félagsins. Formaður Alnæmisbarna, Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, setti fundinn og því næst var Hjalti Franzson kosinn fundarstjóri og Halldór Ármannsson fundarritari. Skýrsla stjórnar og reikningar félagsins, sem formaður lagði fram, voru samþykktir af fundargestum. Úr stjórn áttu að ganga Hildur Gestsdóttir, Ragna Karlsdóttir og Sigurlaug S. Hauksdóttir og gáfu þær allar kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn. Halldóra Karlsdóttir og María J. Gunnarsdóttir voru kosnar skoðunarmenn reikninga

16

 

Alnæmisbörn vilja benda á  alþjóðlega 16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið má rekja aftur til ársins 1991 og stendur yfir frá 25. nóvember, alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi, til 10. desember, hins alþjóðlega mannréttindadags. Tímasetning átaksins var valin til að tengja á táknrænan hátt kynbundið ofbeldi og mannréttindi og til þess að leggja áherslu á mannréttindabrotin sem felast í slíku ofbeldi. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls kynbundins ofbeldis. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Mannréttindastofu Íslands, http://www.humanrights.is/servefir/16dagar

Reykjavik Geothermal styrkir Candle Light Foundation

Guðmundur Þóroddson, stofnandi Reykjavik Geothermal og Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, formaður Alnæmisbarna skrifa undir samkomulagið

Guðmundur Þóroddson, stofnandi Reykjavik Geothermal og Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, formaður Alnæmisbarna skrifa undir samkomulagið

Samkomulag milli Reykjavik Geothermal og Alnæmisbarna um styrk til handa Candle Light Foundation í Kampala, Úganda, var undirritað þ. 31. mars 2009. Með samkomulaginu skuldbindur Reykjavík Geothermal sig að styrkja rekstur Candle Light Foundation með mánaðarlegri greiðslu að upphæð 600 – 1.000 dollara á mánuði. Félagið Alnæmisbörn hefur milligöngu um greiðslu á styrknum.

Reykjavik Geothermal var stofnað 2008 til þess að hvetja til vaxtar í orkuframleiðslu frá jarðhitaauðlindum hvar sem er í heiminum. Candle Light Founation er stofnun sem styður við ungar stúlkur sem eiga um sárt að binda, oftar en ekki vegna alnæmis, til þess að hefja nýtt líf. Félagið Alnæmisbörn var stofnað 2004, af Erlu Halldórsdóttur, heitinni, til þess að styðja við Candle Light Foundation.

 

You are currently browsing the archives for the Uncategorized category.