Styrkja félagið
Alnæmisfaraldurinn geisar hvergi harðar en í Afríku. Vandinn sem við er að etja kemur okkur öllum við. Félagið Alnæmisbörn hefur undanfarin misseri stutt starfsemi Candle Light Foundation (CLF) í Kampala í Úganda. Frá upphafi hefur aðalmarkmið CLF verið að hjálpa ungum stúlkum sem eiga um sárt að binda vegna alnæmisfaraldursins að hefja nýtt líf.
Með því að gefa stúlkunum tækifæri til þess að læra iðn (kertagerð, fatasaum, hárgreiðslu eða bakstur) hafa þær getað endurreist líf sitt. Mikilvægur hluti endurhæfingarinnar felst í því að læra að vinna og sjá um sig sjálfar, þ.e. að taka ábyrgð á eigin lífi. Í raun þurfa þær að læra upp á nýtt að sjá um sig sjálfar, ala upp börnin sín og næra þau, þvo þvott, elda mat, þrífa o.þ.h. Með því að taka þátt í starfi CLF sjá þær afrakstur vinnu sinnar og augljósan tilgang þess að taka líf sitt föstum tökum. Að auki geta stúlkur sótt um að fara aftur í skóla, og er það nám alfarið styrkt frá Íslandi með milligöngu Alnæmisbarna.
Vilt þú gera gæfumuninn í lífi ungrar stúlku í Úganda?
Hægt er að gerast styrktaraðili Alnæmisbarna. Styrktaraðilar greiða yfirleitt á bilinu 500-2.500 kr. á mánuði í gegnum heimabanka sinn inn á reikning félagsins. Allir styrkir renna óskiptir til að greiða skólagöngu fyrir stúlkurnar í Kampala.
Bankareikningur Alnæmisbarna: 1155-15-40733 kt. 560404-3360
Einnig er um að gera að senda tölvupóst á Hildi Gestsdóttur (beinakerling@gmail.com), gjaldkera Alnæmisbarna, og skrá sig sem stuðningsaðila.
Ein leið til að styrkja verkefnið í Kampala er að fylla út stuðningssamkomulag og koma því til stjórnar Alnæmisbarna.
Ef ekki tekst að hlaða niður stuðningssamkomulagi er hægt að hafa samband við Hildi Gestsdóttur, með tölvupósti: beinakerling@gmail.com, eða í síma 6960885.
Alnæmisbörn leita eftir stuðningi þínum við áframhaldandi öflugt starf í Úganda.