Aðalfundur Alnæmisbarna 2011
7. aðalfundur félagsins Alnæmisbörn verður haldinn þriðjudaginn 22. mars 2011 kl. 16:30 – 17:30 í Orkugarði, Grensásvegi 9. Á dagskrá eru aðalfundastörf skv. lögum félagsins.
Viðurkenning á starfi Candle Light Foundation
Mennta- og íþróttamáluráðuneyti Úganda hefur valið Candle Light Foundation til þess að taka þátt í óformlegu þjálfunarverkefni á vegum ráðuneytisins. Candle Light Foundation er eitt af fáum frjálsum félagasamtökum (NGO) sem var valið til þátttöku. Áður þurftu þau að ganga í gegnum ferli þar sem fleiri frjáls félagssamtök voru rýnd ásamt tækni- og verkmenntastofnunum og háskólum í Úganda.
Candle Light Foundation er með þessu skuldbundin til þess að þjálfa 80 bágstaddar stúlkur, 20 í fatasaumi, 20 í kertagerð, 20 í hárgreiðslu og 20 í bakstri. Þjálfunin mun standa yfir árlega í þrjá mánuði í senn og ná til nokkurra ára. Að lokinni þjálfun munu stúlkurnar fá skírteini sem er útgefið af Mennta- og íþróttamálaráðuneyti Úganda og viðurkennt í allri Austur-Afríku. Stúlkurnar sem taka þátt í þjálfuninni, eiga einnig möguleika á að bæta við sig og fá diploma og eða hefja formlegt nám.
Alnæmisbörn samfagna Candle Light Foundation með að hafa öðlast þessa viðurkenning ráðuneytisins á starfi stofnunarinnar og er hún mikið gleðiefni.
Alnæmisbörn fá styrki frá AuðiCapital
Félagið Alnæmisbörn fékk síðastliðið vor tvo styrki úr sjóðnum AlheimsAuður, samfélagssjóði AuðarCapital. Annars vegar var veittur styrkur að upphæð kr. 500.000 til þess að kosta skólagöngu ungra, bágstaddra stúlkna á vegum Candle Light Foundation, CLF og hins vegar styrkur að upphæð kr. 200.000 til smálánasjóðs CLF. Styrkirnir voru veittir við formlega athöfn í Ásmundasafni þann 19. júní síðastliðinn, sjá nánar á vefslóðinni http://www.mbl.is/mm/frettir/ innlent/2010/06/21/samfelagssjodir_audar_capital_veita_styrki/. Við styrkveitinguna var sagt frá starfi Erlu Halldórsdóttur, stofnanda Candle Light Foundation.
Alnæmisbörn greiða nú fyrir almenna skólagöngu 21 stúlkna en þeim hefur farið fækkandi síðustu ár. Ástæða þess er sú að félagið hefur ekki haft bolmagn til þess að styrkja fleiri stúlkur en þær sem þegar eru í námi vegna lægra gengis íslensku krónunnar. Nú eru um 70 stúlkur sem bíða þess að geta hafið almennt nám og mun styrkur AuðarCapital gefa fáeinum stúlkum af þeim lista kost á því.
Smálánasjóður CLF, sem Alnæmisbörn komu á fót árið 2007, hefur frá upphafi til dagsins í dag veitt 53 stúlkum lán.. Vegna styrkins geta nú fleiri stúlkur bæst í hópinn.
Í framhaldi af styrkveitingunni birtist viðtal við Hildi Gestsdóttur, dóttur Erlu og varaformanns Alnæmisbarna, í Fréttablaðinu 3. júlí 2010. Sjá slóðina http://epaper.visir.is/media/201007030000/pdf_online/1_20.pdf.
Ný stjórn Alnæmisbarna
Stjórn félagsins Alnæmisbörn sem kosin var á aðalfundi félagsins 18. mars 2010 hélt sinn fyrsta stjórnarfund 14. apríl s.l. og skipti með sér verkum. Skipting verka innan stjórnar er óbreytt frá 2009 utan að Hildur Gestsdóttir, varaformaður, mun taka að sér gjaldkerastarfið í stað Ásdísar Ólafsdóttur. Skipan stjórnar Alnæmisbarna árið 2010-2011: Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, formaður, Hildur Gestsdóttir, varaformaður og gjaldkeri, Sigurlaug Hauksdóttir, ritari og meðstjórnendur eru Ásdís Ólafsdóttir, Lárus Valgarðsson, Ragna Karlsdóttir og Sigríður Baldursdóttir. Ásdís mun hafa umsjón með fjáröflun til þess að félagið geti staðið við skuldbindingar sínar vegna skólagöngu stúlkna á vegum Candle Light Foundation og Lárus mun hafa umsjón með heimasíðu Alnæmisbarna.
Sala á brauði og kökum í Kringlunni
Alnæmisbörn stóðu fyrir sölu á brauði og kökum, sem um 20 félagsmenn og velunnarar Alnæmisbarna bökuðu, í Kringlunni laugardaginn 18. mars s.l. Nokkrar körfur, sem þrjár stjórnarkonur tóku með sér heim frá Candle Light Foundation í lok árs 2008, voru einnig á boðstólum. Vel gekk og seldist fyrir kr. 93.000 og er hreinn ágóði um kr. 80.000 þegar kostnaður vegna leigu á aðstöðu og annað er dreginn frá.