Aðalfundur Alnæmisbarna árið 2010
Aðalfundur Alnæmisbarna var haldinn þann 18. mars 2010 í Orkugarði að Grensásveg 9 og var dagskrá hans samkvæmt lögum félagsins. Formaður Alnæmisbarna, Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, setti fundinn og því næst var Hjalti Franzson kosinn fundarstjóri og Halldór Ármannsson fundarritari. Skýrsla stjórnar og reikningar félagsins, sem formaður lagði fram, voru samþykktir af fundargestum. Úr stjórn áttu að ganga Hildur Gestsdóttir, Ragna Karlsdóttir og Sigurlaug S. Hauksdóttir og gáfu þær allar kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn. Halldóra Karlsdóttir og María J. Gunnarsdóttir voru kosnar skoðunarmenn reikninga
Alnæmisbörn vilja benda á alþjóðlega 16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið má rekja aftur til ársins 1991 og stendur yfir frá 25. nóvember, alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi, til 10. desember, hins alþjóðlega mannréttindadags. Tímasetning átaksins var valin til að tengja á táknrænan hátt kynbundið ofbeldi og mannréttindi og til þess að leggja áherslu á mannréttindabrotin sem felast í slíku ofbeldi. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls kynbundins ofbeldis. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Mannréttindastofu Íslands, http://www.humanrights.is/servefir/16dagar
Reykjavik Geothermal styrkir Candle Light Foundation

Guðmundur Þóroddson, stofnandi Reykjavik Geothermal og Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, formaður Alnæmisbarna skrifa undir samkomulagið
Samkomulag milli Reykjavik Geothermal og Alnæmisbarna um styrk til handa Candle Light Foundation í Kampala, Úganda, var undirritað þ. 31. mars 2009. Með samkomulaginu skuldbindur Reykjavík Geothermal sig að styrkja rekstur Candle Light Foundation með mánaðarlegri greiðslu að upphæð 600 – 1.000 dollara á mánuði. Félagið Alnæmisbörn hefur milligöngu um greiðslu á styrknum.
Reykjavik Geothermal var stofnað 2008 til þess að hvetja til vaxtar í orkuframleiðslu frá jarðhitaauðlindum hvar sem er í heiminum. Candle Light Founation er stofnun sem styður við ungar stúlkur sem eiga um sárt að binda, oftar en ekki vegna alnæmis, til þess að hefja nýtt líf. Félagið Alnæmisbörn var stofnað 2004, af Erlu Halldórsdóttur, heitinni, til þess að styðja við Candle Light Foundation.
Ný stjórn Alnæmisbarna 2009

Aftari röð frá vinstri: Ásdís Ólafsdóttir, gjaldkeri, Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, formaður, Sigurlaug Hauksdóttir, ritari, Sigríður Baldursdóttir. Fremri röð frá vinstri: Hildur Gestsdóttir, varaformaður, Lárus Valgarðsson.
Á aðalfundi Alnæmisbarna, sem var haldinn þ. 19. mars s.l., var kosin ný stjórn samtakanna. Hana skipa Ásdís Ólafsdóttir, Hildur Gestsdóttir, Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, Lárus Valgarðsson, Ragna Karlsdóttir, Sigríður Baldursdóttir og Sigurlaug Gestsdóttir. Úr stjórn gengu Bjarni Reyr Kristjánsson, Helga Tulinius og María J. Gunnarsdóttir. Ný stjórn hefur haldið sinn fyrsta fund og skipað með sér verkum og er Ingibjörg formaður, Hildur varaformaður, Ásdís gjaldkeri, Sigurlaug ritari og Lárus, Ragna og Sigríður meðstjórnendur. Lárus og Sigríður munu sjá um vefsíðu Alnæmisbarna.
Safnað fyrir barnaheimili í Rackoko
Félagið Alnæmisbörn fór í söfnunarátak fyrir jól til að safna fyrir byggingu dagheimilis fyrir börnin í Rackoko. Félagsmenn seldu kerti í Kringlunni og leituðu stuðnings hjá stofnunum og fyrirtækjum og buðu þeim að senda út rafræna jólakveðju í stað hefðbundinna korta og láta andvirðið renna til dagheimilisins.
Félagsmenn söfnuðu 851.000 kr. sem hefur verið afhent óskipt til verkefnisins og vilja félagsmenn þakka stuðninginn og góðar móttökur.
Í desember styrkti félagið verkefnið um 500.000 kr. og er framlagið því orðið alls 1,5 milljón kr.