Alnæmisbörn

Þú getur gert gæfumuninn

HIV-born

Sala á barnafötum í Kolaportinu

Silla stendur vaktina í Kolaportinu

Sigurlaug Hauksdóttir

Helgina 24.-25. september var stjórn Alnæmisbarna með sölu í Kolaportinu á notuðum barna- og unglingafatnaði tilstyrktar stúlkum í Candle Light Foundation. Fötin voru gefin félaginu og voru á börn frá fæðingu til unglingsaldurs.

Hagnaður af sölunni var 46,000 sem nægir fyrir námi einnar stúlku í framhaldsskóla í eitt ár.  Sama upphæð nægir fyrir námi tveggja stúlkna í grunnskóla í jafn langan tíma.

Enn er til nóg af fötum og því stefnt að því að fara aftur í Kolaportið eftir áramót. Þá verður hægt að kaupa poka af fötum fyrir 1.000kr. Fólk er því er hvatt til að fylgjast með fréttum af næstu sölu og koma og styrkja gott málefni.

Margrét Skúladóttir og Sigríður Baldursdóttir

Candle Light fær myndavél

Rosette og James

Í ágúst fékk Candle Light Foundation myndavél að gjöf frá Alnæmisbörnum og ætlar Rosette Nabuuma, forstöðukonan, að vera dugleg að senda myndir af stelpunum og starfi samtakanna. Úgandi, James Kabagambe, sem er búsettur í Svíþjóð hafði myndavélina í för með sér síðast þegar hann heimsótti heimalandið og færði samtökunum hana. Hann fékk leiðsögn um svæðið og kynntist starfinu. Hann var ánægður með það sem hann sá og fannst svo mikið til þess koma að hann ákvað að styrkja starfið um 100 þúsund shillinga sem eru um 4000 krónur. Þá keypti hann einnig kerti sem stelpurnar höfðu búið til. Svona framlag er auðvitað mikilvægt fyrir stelpurnar og eru Alnæmisbörn þakklát fyrir svona stuðning.

Þeir sem vilja styrkja starfið geta smellt hér.

Húsnæði Candle Light Foundation við Balintuma Road í Kampala

Ný stjórn Alnæmisbarna

Á síðasta aðalfundi Alnæmisbarna þann 22. mars 2011 var kosin ný stjórn.  Þrír gengu úr stjórn, Ingibjörg Guðlaugsdóttir, Lárus Valgarðsson og Ásdís Ólafsdóttir. Félagið þakkar þeim vel unnin störf í þágu félagsins.

Í stjórn næsta árið eru:

Sigríður Baldursdóttir, formaður
Hildur Gestsdóttir, varaformaður og gjaldkeri
Sigurlaug Hauksdóttir, ritari

Aðrir í stjórn eru: Ragna Karlsdóttir, Margrét Skúladóttir, Dögg Guðmundsdóttir og Harpa Hauksdóttir, meðstjórnendur.

Aðalfundur Alnæmisbarna 2011

7.  aðalfundur félagsins Alnæmisbörn verður haldinn þriðjudaginn 22. mars 2011 kl. 16:30 – 17:30 í Orkugarði, Grensásvegi 9.  Á dagskrá eru aðalfundastörf skv. lögum félagsins.

Viðurkenning á starfi Candle Light Foundation

Mennta- og íþróttamáluráðuneyti Úganda hefur valið Candle Light Foundation til þess að taka þátt í óformlegu þjálfunarverkefni á vegum ráðuneytisins.  Candle Light Foundation er eitt af fáum frjálsum félagasamtökum (NGO) sem var valið til þátttöku. Áður þurftu þau að ganga í gegnum ferli þar sem fleiri frjáls félagssamtök voru rýnd ásamt tækni- og verkmenntastofnunum og háskólum í Úganda.

Candle Light Foundation er með þessu skuldbundin til þess að þjálfa 80 bágstaddar stúlkur, 20  í fatasaumi, 20 í kertagerð, 20 í hárgreiðslu og 20 í bakstri. Þjálfunin mun standa yfir árlega í þrjá mánuði í senn og ná til nokkurra ára. Að lokinni þjálfun munu stúlkurnar fá skírteini sem er útgefið af Mennta- og íþróttamálaráðuneyti Úganda og viðurkennt í allri Austur-Afríku. Stúlkurnar sem taka þátt í þjálfuninni, eiga einnig möguleika á að bæta við sig og fá diploma og eða hefja formlegt nám.

Alnæmisbörn samfagna Candle Light Foundation með að hafa öðlast þessa viðurkenning ráðuneytisins á starfi stofnunarinnar og er hún mikið gleðiefni.