Alnæmisbörn

Þú getur gert gæfumuninn

HIV-born

Um félagið

Félagið var stofnað vorið 2004 til að styðja starf Candle Light Foundation í Kampala í Uganda.

Candle Light Foundation (CLF) var stofnað af Erlu Halldórsdóttur heitinni árið 2001 til að styðja ungar stúlkur sem hafi orðið fyrir barðinu á alnæmi. Það gerði hún með því að stofna kertagerð sem framleiðir kerti og skapaði þannig afkomu fyrir stúlkur af götunni.

Tilgangur og markmið CLF

Frá upphafi hefur aðalmarkmið CLF verið að hjálpa ungum stúlkum sem eiga um sárt að binda vegna alnæmisfaraldursins að hefja nýtt líf. Margar þeirra hafa lent á götunni – í vændi og fíkniefnaneyslu – og því hvergi átt höfði sínu að halla. Með því að gefa stúlkunum tækifæri til þess að starfa við kertagerð hluta úr degi og að læra hafa þær getað endurreist líf sitt. Mikilvægur hluti endurhæfingarinnar felst í því að læra að vinna og sjá um sig sjálfar, þ.e. að taka ábyrgð á eigin lífi.  En þegar stúlkurnar koma til CLF hafa tengsl þeirra við daglegt líf rofnað vegna lífsins á götunni. Að auki gefst þeim færi á að stunda nám og afla sér starfsréttinda. CLF veitir þeim nauðsynlegt skjól og öryggi svo að þær geti staðið á eigin fótum.

Lög félagsins

Stjórn Alnæmisbarna 2009-2010

Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, formaður
Hildur Gestsdóttir, varaformaður
Sigurlaug Hauksdóttir, ritari
Ásdís Ólafsdóttir, gjaldkeri
Lárus Valgarðsson
Ragna Karlsdóttir
Sigríður Baldursdóttir

Fyrri stjórnir Alnæmisbarna